Skert þjónusta verður á skrifstofu Hlífar næstu daga vegna fræðsludaga starfsfólks og lokað eftir hádegi á föstudag. Þau sem eiga bókað orlofshús þurfa að sækja lykla á fimmtudag eða fyrir hádegi á föstudag.

Skrifstofan verður opin frá 08:00 til 16:00 miðvikudag og fimmtudag en færra starfsfólk verður á skrifstofunni en venjulega. Því má búast við einhverjum töfum á afgreiðslu mála. Á föstudag verður opið frá 08:00 til 12:00.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en við þökkum veittan skilning.