Miklar breytingar eru framundan í húsnæðismálum Verkalýðsfélagsins Hlífar á komandi misserum. Félagið hefur fest kaup á húseigninni Strandgötu 1, í miðbæ Hafnarfjarðar. Þar er nú Bókasafn Hafnarfjarðar, en það kemur til með að flytja starfsemi sína í nýtt húsnæði í miðbænum í sumar. Ljóst er að félagið þarf að láta gera ýmsar breytingar á húsnæðinu áður en af flutningum verður, en hönnun er þegar hafin.

Með kaupunum er ljóst að félagið flytur ekki starfsemi sína í eigið hús að Flatahrauni 3, eins og áformað var. Það þýðir ennfremur, að Félag eldri borgara hefur það húsnæði til afnota áfram. Í tilboði félagsins til Hafnarfjarðarbæjar vegna Strandgötu 1, kom fram að félagið væri reiðubúið til að leigja Hafnarfjarðarbæ húsnæðið að Flatahrauni undir starfsemi FEBH, til 15 ára að lágmarki.

Bæði kaupsamningur vegna Strandgötu 1 og leigusamningur vegna Flatahrauns 3 voru undirritaðir í síðustu viku. Þegar gengið var frá leigusamningnum, bauð Félag eldri borgara fulltrúum félagsins og fulltrúum bæjarins til kaffisamsætis, ásamt stjórn FEBH, enda langvarandi óvissu um framtíðarhúsnæði félagsins eytt með þessum gjörningum. Núverandi húsnæði Hlíf, að Reykjavíkurvegi 64 er í söluferli.

Hlíf 120 ára

Eftir flutning Hlífar á Strandgötu 1, verður aðstaða félagsins til að þjónusta félagsmenn mun betri. Jafnframt er gert ráð fyrir stórbættri aðstöðu til fræðslu- og námskeiðahalds í húsnæðinu. Þegar er hafinn undirbúningur að metnaðarfullri fræðsludagskrá í nýjum húsakynnum, en vegna aðstæðna í núverandi húsnæði hefur ekki reynst unnt að sinna því sem skyldi.

Verkalýðsfélagið Hlíf fagnar 120 ára afmæli snemma á næsta ári. Við bindum miklar vonir við að geta fagnað þeim tímamótum á nýjum stað, í hjarta bæjarins.

Frá undirritun kaupsamnings.