Skip to main content

Trúnaðarmannanám 2. hluti Hlíf

Dagsetning: 06/03/2025 – 07/03/2025

Tími: 09:00 – 14:00

Staðsetning: Fundarsalur Hlífar – Reykjavíkurvegi 64

Tengiliður: Guðmundur Rúnar Árnason – gra@hlif.is

 

Skráning: Trúnaðarmannanám 2. hluti Hlíf

 

Lýsing:

Nemendur kynnast starfsemi stéttarfélagsins, réttindum félagsmanna. Nemendur læra á innihald og uppbyggingu kjarasamninga og helstu túlkun á þeim. Nemendur kynnast sjóðum félagsins og réttindum félagsmanna. Lögð er megináhersla á mikilvægi góðra samskipta á vinnustað, hvernig megi stuðla að góðum samskiptum. Skoðuð er mismunandi framkoma, áhrif hennar á okkur og aðra. Nemendur kynnast afleiðingum langvarandi slæmra samskipta, eineltis á vinnustað, hvernig bregðast eigi við og ábyrgð gerenda og atvinnurekenda.

Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans, www.felagsmalaskoli.is
Stofna aðgang með netfangi og lykilorði.
Þar sækja nemendur þau námsgögn sem notuð eru fyrir hvern námsþátt.
Á innri vef fara fram samskipti nemenda og leiðbeinenda.

Nemendur munu geta fylgst með námsframvindu sinni inni á innri vef skólans.
Þar munu þeir einnig fylla út námsmat og sækja viðurkenningarskjölin að námskeiðið loknu.

Munið að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, ipad eða símann sinn á
námskeiðin, þar sem námsefni verður meira eða minna rafrænt frá og með 1. janúar 2018.