Trúnaðarmannanám 1. hluti Hlíf
4. og 5. desember 2024
Staðsetning: Fundarsalur Hlífar – Reykjavíkurvegi 64
Tengiliður: Guðmundur Rúnar Árnason – gra@hlif.is
Skráning: Trúnaðarmannanám 1. hluti Hlíf
Dagur og tími | Miðvikudagur 4. Des. | Fimmtudagur 5. Des. |
---|---|---|
09:00-12:00 | Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn Sigurlaug Gröndal |
Trúnaðarmaðurinn starf hans og staða Sigurlaug Gröndal |
12:00-12:30 | Matarhlé | Matarhlé |
12:30-14:00 | Þjóðfélagið og vinnumarkaðurinn Sigurlaug Gröndal |
Trúnaðarmaðurinn starf hans og staða Sigurlaug Gröndal |
Stiklur um efnið : • Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkaði • Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna. • Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera? • Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum • Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð. • Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim |
---|
Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans, www.felagsmalaskoli.is
Stofna aðgang með netfangi og lykilorði.
Þar sækja nemendur þau námsgögn sem notuð eru fyrir hvern námsþátt.
Á innri vef fara fram samskipti nemenda og leiðbeinenda.
Nemendur munu geta fylgst með námsframvindu sinni inni á innri vef skólans.
Þar munu þeir einnig fylla út námsmat og sækja viðurkenningarskjölin að námskeiðið loknu.
Munið að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, ipad eða símann sinn á
námskeiðin, þar sem námsefni verður meira eða minna rafrænt frá og með 1. janúar 2018.