Skip to main content

Trúnaðarmannanám 1. hluti Hlíf

Dagsetning: 27/02/2025 – 28/02/2025

Tími: 09:00 – 14:00

Staðsetning: Fundarsalur Hlífar – Reykjavíkurvegi 64

Tengiliður: Guðmundur Rúnar Árnason – gra@hlif.is

 

Skráning: Trúnaðarmannanám 1. hluti Hlíf

 

Lýsing:

Hvert er hlutverk stéttarfélaga, sambanda og heildarsamtaka á vinnumarkað.

Hvernig starfa stéttarfélögin, stjórnir þeirra og hvert er hlutverk félagsmanna.

Hvert er hlutverk trúnaðarmanns á vinnustað, hvað á hann að gera og hvað á hann ekki að gera? Hvert er hlutverk trúnaðarmanna samkvæmt lögum og kjarasamningum.

Hvar getur trúnaðarmaður aflað sér upplýsinga um túlkanir kjarasamninga og önnur mál sem koma inn á hans borð. Hvernig eiga trúnaðarmenn að taka á móti umkvörtunum og vinna úr þeim.

 

Nemendur þurfa að skrá sig inn á innri vef Félagsmálaskólans, www.felagsmalaskoli.is
Stofna aðgang með netfangi og lykilorði.
Þar sækja nemendur þau námsgögn sem notuð eru fyrir hvern námsþátt.
Á innri vef fara fram samskipti nemenda og leiðbeinenda.

Nemendur munu geta fylgst með námsframvindu sinni inni á innri vef skólans.
Þar munu þeir einnig fylla út námsmat og sækja viðurkenningarskjölin að námskeiðið loknu.

Munið að nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa meðferðis fartölvu, ipad eða símann sinn á
námskeiðin, þar sem námsefni verður meira eða minna rafrænt frá og með 1. janúar 2018.