Sveitarfélögin hafa ekki staðið við ákvæði í gildandi kjarasamningi um styttingu vinnuvikunnar í dagvinnu, að því er fram kemur í ályktun sem formannafundur Starfsgreinasambands Íslands samþykkti rétt í þessu. Skorað er á Sambandið og sveitarfélögin að taka sér tak og standa við gerðan samning. Ályktunin fer hér á eftir.
Verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir því í áratugi að vinnuvikan verði stytt hjá launafólki. Í kjarasamningum við ríki og sveitarfélög sem undirritaðir voru 2020 voru stigin þýðingarmikil skref til styttingar vinnuvikunnar. Innleiðing þeirra breytinga í dagvinnu sem tóku gildi 1. janúar 2021 á nú að vera komin til framkvæmda. Í þeirri vinnu skiptir öllu máli að opinberir vinnuveitendur standi við kjarasamninginn og tryggi launafólki þá styttingu sem um var samið.
Formannafundur SGS haldinn í Mývatnssveit, 20. – 21 maí 2021, lýsir yfir miklum áhyggjum með framkvæmd á útfærslu styttingar vinnuvikunnar hjá sveitarfélögunum um land allt. Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitafélögin vítt og breytt um landið hafa ekki sinnt verkefninu og fá algera falleinkunn. Samantekin tölfræði sýnir að starfsfólk á skrifstofum semur um fulla styttingu án teljandi vandkvæða en starfsfólk í leik- og grunnskólum og slíkum störfum fái litla eða enga styttingu. Ríki og Reykjavíkurborg hafa staðið sig betur.
Fundurinn skorar á Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögin að hysja upp um sig buxurnar og standa við gerðan kjarasamning.