Skip to main content

Reglugerð sjúkrasjóðs Verkalýðsfélagsins Hlífar

 

  1. gr. Nafn sjóðsins og heimili

    1. Sjóðurinn heitir Sjúkra­sjóður Verkalýðsfélagsins Hlífar.
    2. Sjúkrasjóður Hlífar er stofnaður samkvæmt samþykktum félagsins og sjóðsfélagar eru þeir sem greitt er af til sjóðsins.
    3. Sjúkrasjóður Hlífar er eign Verkalýðsfélagsins Hlífar. Heimili hans og varnarþing er í Hafnarfirði.
  2. gr. Verk­efni sjóðsins
    1. Verk­efni sjóðsins er að veita sjóðs­fé­lögum fjár­hags­að­stoð í veikinda-, slysa- og dá­nar­t­il­vikum. Sjóðsfélagar eru þeir sem greitt hafa, eða fyrir þá hafa verið greidd, iðgjöld til sjóðsins.
    2. Verk­efni sjóðsins er ennfremur að vinna að fyrir­byggjandi að­gerðum sem snerta öryggi og heilsu­far.
  3. gr. Tekjur
    1. Tekjur sjóðsins eru skv. kjarasamningum Hlífar sbr. 7. gr. laga nr. 19/1979, samnings­bundin gjöld atvinnu­rek­enda til sjóðsins.
    2. Vaxta­tekjur og annar arður.
    3. Gjafir, fram­lög og styrkir.
    4. Aðrar tekjur sem að­al­fundur fé­lagsins/sjóðsins kann að ákveða hverju sinni.
  4. gr. Stjórn og rekstur
    1. Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur mönnum og tveimur til vara sem kosnir eru með sama hætti og stjórn Verkalýðsfélagins Hlífar á að­al­fundi félagsins og ber stjórnin ábyrgð á öllum fjár­reiðum sjóðsins.
    2. Stjórnun sjóðsins skal vera í sam­ræmi við þau sjónar­mið sem gilda skv. almennum stjórn­sýslu­reglum.
    3. Heimilt er að fela skrif­stofu Vlf. Hlífar fjár­reiður og um­sjón með sjóðnum. Þó skal halda bók­haldi sjóðsins að­skildu frá öðrum fjár­reiðum Vlf. Hlífar.
    4. Ávallt skulu liggja fyrir gögn um rétt einstaklings til greiðslu úr sjóðnum.
  5. gr. Bókhald, reikningar og endur­skoðun
    1. Reikningar sjóðsins skulu lagðir fram áritaðir af fé­lags­legum skoðunar­mönnum og lög­giltum endur­skoðanda fyrir að­al­fund félagsins.
    2. Endurskoðun ber að framkvæma af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarfélagi í samræmi við góða endurskoðunarvenju sem í gildi er á hverjum tíma.
    3. Í ársreikningi eða skýringum með honum skal sundurliða sérstaklega kostnað vegna hvers og eins bótaflokks skv. 12.gr.
    4. Um bókhald, reikninga og endurskoðun fer að öðru leyti skv. viðmiðunarreglum um bókhald og ársreikninga stéttarfélaga og landssambanda sbr. 3. mgr. 44. gr. laga ASÍ eins og þær reglur eru á hverjum tíma.
  6. gr. Út­tekt óháðra eftir­lits­aðila
    1. Ár hvert, eigi síðar en 31. maí, skulu endurskoðaðir ársreikningar sjóðsins sendir skrifstofu ASÍ.
    2. Fimmta hvert ár að minnsta kosti skal stjórn sjóðsins fá trygginga­fræðing eða lög­giltan endur­skoðanda til þess að meta fram­tíðar­stöðu sjóðsins og semja skýrslu til stjórnar um at­hugun sína. Stjórn sjóðsins skal senda mið­stjórn ASÍ út­tekt þessa með árs­reikningi sjóðsins.
    3. Við mat á fram­tíðar­stöðu sjóðsins skal til­greina rekstrar­kostnað, ávöxtun sjóðsins og hvort sjóðurinn geti staðið við skuld­bindingar sínar. Sér­staka grein skal gera fyrir áhrifum á af­komu sjóðsins vegna ákvarðana skv. greinum 12.3 og 12.4.
    4. Geti sjóðurinn ekki staðið við skuld­bindingar sínar skv. niðurstöðu út­tektarinnar ber stjórn sjóðsins að leggja fyrir að­al­fund tillögu að breytingu á reglu­gerð sem tryggir að sjóðurinn geti staðið við skuld­bindingar sínar.
  7. gr. Ávöxtun sjóðsins
    1. Heimilt er að ávaxta fé sjóðsins með eftir­far­andi hætti;
      1. í ríkis­skulda­bréfum eða skulda­bréfum sem tryggð eru með ábyrgð ríkis­sjóðs,
      2. með kaupum á markaðs­skráðum verð­bréfum,
      3. í bönkum eða spari­sjóðum,
      4. í fas­t­eignum tengdum starf­semi sjóðsins,
      5. á annan þann hátt er stjórn sjóðsins metur tryggan sbr. 11. gr. viðmiðunarreglna um bókhald og ársreikninga stéttarfélaga og landssambanda eins og þær eru á hverjum tíma sbr. 41. gr. laga ASÍ.
  8. gr. Ráð­stöfun fjár­muna
      1. Ávallt skal þess gætt að ráð­stöfun fjár­muna sjóðsins brjóti ekki í bága við til­gang hans eða verk­efni.
      2. Þegar um er að ræða ráð­stöfun fjár­muna til verk­efna sem ekki falla undir megintil­gang sjóðsins með beinum hætti skal tryggt að um eðli­lega ávöxtun þess fjár­magns sé að ræða, sbr. a, b og c lið greinar 7.1.
  • Grund­völlur styrk­veitinga úr sjúkra­sjóði
    1. Rétt til styrk­veitinga úr sjóðnum eiga þeir sem full­nægja eftir­töldum skil­yrðum, sbr. þó 10. gr.
    2. Einungis þeir sem sannan­lega greiða eða er greitt af til sjóðsins og verið er að greiða fyrir til sjóðsins þegar réttur til að­stoðar myndast.
    3. Þeir sem greidd hafa verið af til sjóðsins iðgjöldsamkvæmt kjarasamningi í a.m.k. 6 mánuði.
    4. Hafi um­sækjandi verið full­gildur aðili í sjúkra­sjóði annars fé­lags innan ASÍ þar til hann byrjar greiðslu til sjóðsins, sbr. 10. gr.
    5. Hafi iðgjöld til sjúkrasjóðs ekki verið greidd vegna sjóðfélaga, en hann getur fært sönnur á, að félagsgjöld til viðkomandi aðildarfélags hafi samkvæmt reglulega útgefnum launaseðlum verið dregin af launum hans síðustu 6 mánuði, skal hann njóta réttar eins og iðgjöld til sjúkrasjóðs hafi verið greidd.
    6. Sjóðfélagi sem hefur verið frá störfum vegna veikinda eða slysa, skal ef   sjóðstjórn óskar, mæta í viðtal og skoðun til trúnaðarlæknis eða annars aðila sem sjóðurinn tilnefnir. Hafni sjóðsfélagi viðtali,  hefur stjórn sjóðsins rétt á að endurskoða greiðsluskyldu úr sjúkrasjóðnum.
    7. Heimilt er að úrskurða dagpeninga afturvirkt í 3 mánuði frá því að umsókn berst til sjóðsins.
    8. Hámarks fjölda daga sem greiddir eru hverjum sjóðsfélaga eru 3 tímabil á 10  árum.
  • gr. Sam­skipti sjúkra­sjóða
    1. Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu sjúkra- og slysa­dag­peninga úr sjúkra­sjóði eins verka­lýðs­fé­lags innan ASÍ, öðlast þann rétt hjá nýjum sjóði skv. þeim reglum sem þar gilda eftir að hafa greitt í þann sjóð í einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrri sjóðnum.
    2. Vinni félagsmaður á fleiri en einum vinnu­stað og hafi verið greitt í fleiri en einn sjúkra­sjóð þegar sótt er um greiðslu, skal um­sækjandi greina frá því í hvaða sjóði hann hefur greitt og er heimilt að fresta greiðslu bóta þangað til fyrir liggur stað­festing annarra sjóða á því að um­sækjandi hafi ekki sótt um greiðslur þaðan. Sjúkra­sjóðurinn skal leita slíkrar stað­festingar og gefa síðan öðrum sjóðum yfir­lit yfir þær bætur sem greiddar eru vegna um­sækjandans, tegund og fjár­hæð bóta.
  • gr. Geymd réttindi
    1. Heimilt er að veita þeim sem gengst undir starfs­þjálfun, sækir nám­skeið eða stundar nám í allt að 24 mánuði og hefur síðan aftur störf á samningssviði aðildarfélaga ASÍ, endur­nýjaðan bóta­rétt þegar greitt hefur verið til sjóðsins í einn mánuð, hafi um­sækjandi áður verið full­gildur sjóð­fé­lagi. Sama gildir um þá sem hverfa frá vinnu vegna veikinda eða af heimilis­á­st­æðum.
    2. Þeir sjóðfélagar sem fara í lögbundið fæðingarorlof halda áunnum réttindum sínum hefji þeir þegar að loknu fæðingarorlofi aftur störf á samningssviði aðildarfélaga ASÍ enda ákveði viðkomandi að viðhalda rétti sínum með greiðslu félagsgjalds í fæðingarorlofi.
  • gr. Styrk­veitingar
    1. Sjóðsfélagar á almennum vinnumarkaði eiga rétt til dagpeninga í veikinda- og slysaforföllum í allt að 4 mánuði (120 dagar), að loknum greiðslum skv. veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, ekki nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.
    2. Sjóðsfélagi sem starfar samkvæmt kjarasamningi utan almenns vinnumarkaðar, svo sem hjá ríki, sveitafélagi eða sjálfseignarstofnun, skal fá greitt allt að 90 dögum, þó þannig að samanlagt  greiðslutímabil launagreiðanda og sjóðsins verði ekki lengra en 1 ár. Ekki er greitt lengur en óvinnufærni eða veikindi vara. Ef verulegar breytingar hafa verið á launum sjóðsfélaga síðustu 6 mánuði er heimilt að meta tekjurnar sérstaklega og þá yfir lengra tímabil.
    3. Dagpeninga í allt að 3 mánuði (90 dagar), að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlegan og/eða langvinnan sjúkdóm og þarfnast sérstakrar umönnunar. Með alvarlega fötluðum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlega greindarskerðingu, geðraskanir eða alvarlega líkamlega hömlun og þarfnast sérstakrar umönnunar.
    4. Dagpeninga í allt að 3 mánuði (90 dagar) vegna mjög alvarlegra veikinda maka. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.
    5. Eingreiddar dánarbætur við andlát virks og greiðandi sjóðfélaga sem nemi 264.150 kr m.v. starfshlutfall hans. Rétthafar bóta eru maki sjóðfélaga og börn hans undir 18 ára aldri. Einnig nákomin ættingi t.d. móðir eða faðir sem viðkomadi sjóðsfélagi hefur haft á framfæri sínu. Bótafjárhæð miðast við launavísitölu pr. 1. júlí 2012. og tekur sömu breytingum og hún. Stjórn sjóðsins er heimilt að greiða erfingjum/dánarbúi útfararstyrk við andlát sjóðsfélaga.Fjárhæð styrksins ákveður stjórn félagsins í samráði við stjórn sjúkrasjóðs.

       

      Hámarksstyrkur á við sjóðsfélaga sem verið hefur í starfi og greitt hefur verið reglulega af til sjóðsins á síðustu 24 mánuðum a.m.k.

       

      Fullur styrkur innvinnst á 5 árum eða sem nemur 1/5 fyrir hvert ár enda hafi verið greitt lágmarksiðgjald fyrir sjóðsfélaga. Séu greiðsluár innan við 5, skal styrkurinn greiddur hlutfallslega miðað við árafjölda.

      Útfararstyrkur vegna sjóðsfélaga, sem verið hefur í hlutastarfi, innvinnst á 5 árum eða sem nemur 1/5 fyrir hvert ár. Styrkurinn skal greiddur hlutfallslega, miðað við hlutfall iðgjaldagreiðslna af fullri iðgjaldagreiðslu, þó þannig að iðgjaldagreiðslur undir 20% gefa ekki rétt til styrks.

       

      Heimild til útfararstyrks fyrnist mánuði eftir að sjóðsfélagi öðlast rétt í öðru verkalýðsfélagi innan ASÍ. Einnig fyrnist heimildin eftir 5 ár ef engar greiðslur berast til sjóðsins vegna sjóðsfélaga á því tímabili. Um félagsmenn sem koma úr öðru félagi innan ASÍ, hvort sem þeir hafa áður greitt til sjúkrasjóðs Hlífar eða ekki, gilda ákvæði ASÍ um réttindi félagsmanna.

      Útfararstyrkur vegna sjóðsfélaga, sem hættur er störfum á vinnumarkaði t.d. vegna aldurs og ekki hefur verið greitt af til sjóðsins síðustu 24 mánuði og ekki greitt til annars stéttarfélags á því tímabili, er 50%.  Styrkurinn helst óbreyttur fyrstu tvö árin eftir að sjóðsfélagi hættir á vinnumarkaði en fyrnist þá um 10% á  ári.

       

      Við andlát manns sem ekki var á vinnumarkaði en var sjóðsfélagi við starfslok er stjórn sjúkrasjóðs heimilt að greiða dánarbúi hluta útfararstyrks. Skilyrt er að sjóðsfélagi hafi greitt samfellt í sjóðinn í 5 ár fyrir starfslok. Greiðsla til nánasta skyldmennis er 160.000 kr.

    6. Dagafjölda greiddra dagpeninga skv. 12.1 lið, til þeirra sem greitt er hlutfallslega lægra iðgjald af en 1%, er heimilt að skerða í sama hlutfalli og iðgjaldið er lægra en 1%.
    7. Dagpeninga skv. 12.1, 12.2 og 12.3 er heimilt að miða við meðaltal heildarlauna á síðustu 12 mánuðum í stað síðustu 6 mánaða, hafi tekjur sjóðfélaga breyst verulega til hækkunar eða lækkunar á viðmiðunartímabilinu. Jafnframt er heimilt að ákveða hámark dagpeninga skv. 12.1, 12.2 og 12.3 sem þó sé ekki lægra en 328.625 kr- á mánuði. Bótafjárhæð miðast við launavísitölu pr. 1. júlí 2012 og tekur sömu breytingum og hún.
    8. Réttur skv. 12.1, 12.2 og 12.3 endurnýjast á hverjum 12 mánuðum, hlutfallslega eftir því sem hann er nýttur, talið frá þeim degi sem dagpeningagreiðslum líkur hverju sinni og greiðslur iðgjalda hefjast að nýju.
    9. Heimilt er stjórn sjóðsins að veita styrki til sjóðs­fé­laga í formi for­varnar- og endur­hæfingar­styrkja og styrkja vegna sjúkra- og slysa­kostnaðar.
    10. Styrkir til stofnana og fé­laga­sam­taka skulu ákveðnir af stjórn sjóðsins hverju sinni skv. gr. 2.2.
    11. Við ráð­stöfun fjár­muna skv. 12.8 og 12.9 skal þess gætt að mögu­leiki sjóðsins til að standa við upp­haf­legar skuld­bindingar sínar vegna sjúk­dóma og slysa skerðist ekki. Í reglu­legri út­tekt á af­komu sjóðsins, skv. 6. gr., skal út­tektar­aðili skoða þennan þátt sér­stak­lega.
    12. Slysadagpeningar skv. grein þessari greiðast ekki vegna bótaskyldra slysa og atvinnusjúkdóma, þ.m.t. bifreiðaslysa, þar sem bætur greiðast skv. skaðabótalögum.
    13. Réttur til dagpeninga stofnast frá þeim tíma er samningsbundinni eða lögboðinni kaupgreiðslu lýkur. Dagpeningar greiðast þegar sjóðsfélagi hefur verið launalaus í a.m.k. 5 virka daga samfellt eða lengur, en er þá greitt frá þeim degi er launagreiðslu lýkur.Réttur til dagpeninga fellur niður þegar og ef sjóðsfélagi öðlast rétt til elli-, örorku- eða endurhæfingargreiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins og eða lífeyrissjóði.
  • gr. Lausn frá greiðslu­skyldu
    1. Ef far­s­óttir geisa getur sjóðs­stjórn leyst sjóðinn frá greiðslu­skyldum sínum um stundar­sakir. Einnig getur sjóðs­stjórn ákveðið að lækka um stundar­sakir fjár­hæð dag­peninga ef af­komu sjóðsins virðist hætta búin.
  • gr. Til­högun greiðslna úr sjóðnum
    1. Af­greiðsla sjóðsins skal vera á skrif­stofu Verkalýðsfélagsins Hlífar og greiðir ­sjóðurinn allan kostnað sem af rekstri hans leiðir.
    2. Stjórn sjóðsins setur nánari verklagsreglur um fyrir­komu­lag á greiðslu dag­peninga og aðra starfs­til­högun.
    3. Stjórn sjóðsins og starfs­menn hans skulu hafa að leiðar­ljósi almennar stjórn­sýslu­reglur um með­ferð upp­lýsinga um um­sóknir og af­greiðslu sjóðsins.
    4. Um­sóknum skal skilað á því formi sem stjórn sjóðsins ákveður og þeim fylgi nauðsyn­leg vott­orð sem tryggja rétt­mæti greiðslna.
    5. Til að tryggja að félagsmaður haldi öðrum réttindum sínum í félaginu, er tekið 1% félagsgjald af sjúkradagpeningum.
  • gr. Fyrning bótaréttar
    1. Réttur til dagpeninga í veikinda- og slysaforföllum skv. gr.12.1 og 12.4 fellur niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
    2. Réttur til styrkja skv. reglugerð þessari fellur að öðru leyti niður sé þeirra ekki vitjað innan 12 mánaða frá því rétturinn stofnaðist.
  • gr. Endur­greiðsla iðgjalda
    1. Iðgjöld til ­sjóðsins endur­greiðast ekki.
  • Upp­lýsinga­skylda
    1. Stjórn sjóðsins er skylt að upp­lýsa sjóðs­fé­laga um rétt þeirra til að­stoðar sjóðsins á aðgengilegan hátt m.a. með út­gáfu bæklinga, dreifi­rita og/eða á heimasíðu félagsins.
  • gr. Breyting á fjár­hæðum og styrkjum
    1. Stjórn félagsins skal kynna fyrir að­al­fundi breytingar á al­mennum reglum um fjár­hæðir styrkja sem sjóðurinn greiðir.
  • gr. Breytingar á reglu­gerðinni
    1. Breytingar á reglu­gerðinni verða að­eins gerðar á að­al­fundi og þurfa þær að vera sam­þykktar með meirihluta greiddra at­kvæða fundarins. Slíkrar tillögu skal getið í fundar­boði.
    2. Breytingar á reglugerðinni skulu sendar skrifstofu ASÍ þegar og þær hafa verið samþykktar á aðalfundi.
  •  

     

    Reglugerðin tekur gildi frá og með 1. júlí 2024.

     

    Samþykkt á aðalfundi 13. júní 2024.

    Eyþór Árnason

    Gundega Jaunlinina

    Valborg Óskarsdóttir