Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, tók í dag, fimmtudaginn 11. ágúst, við embætti forseta Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Embættinu mun hann gegna fram að þingi ASÍ sem fram fer í októbermánuði.
Kristján Þórður tekur við embætti forseta af Drífu Snædal sem sagði af sér 10. ágúst.
Kristján Þórður var sjálfkjörinn 2. varaforseti á 43. þingi ASÍ haustið 2018 og varð 1. varaforseti Alþýðusambandsins við afsögn Vilhjálms Birgissonar, núverandi formanns Starfsgreinasambands Íslands, í aprílmánuði 2020. Kristján var sjálfkjörinn 1. varaforseti á þingi ASÍ í október 2020.
Kristján Þórður hefur verið formaður Rafiðnaðarsambands Íslands frá 2011. Árið 2008 var hann kjörinn formaður Félags rafeindavirkja.
Kristján Þórður fæddist í Keflavík árið 1980, er kvæntur og þriggja barna faðir.