Miklu munar á launum karla og kvenna sem eru félagar í Verkalýðsfélaginu Hlíf samkvæmt árlegri kjarakönnun félagsins. Munurinn minnkar þó milli ára.
Samkvæmt könnuninni, sem Gallup gerði meðal félagsfólks Hlífar í október og nóvember 2025, voru heildarlaun karla fyrir skatta 801 þúsund krónur á mánuði að meðaltali. Heildarlaun kvenna voru 664 þúsund krónur á mánuði fyrir skatta. Mismunurinn er 137 þúsund krónur, eða 17 prósent. Tölurnar miða við þau sem eru í fullu starfi og þær eru leiðréttar fyrir starfshlutfalli.
Heildarlaun kvenna hækkuðu um 6,6 prósent milli ára en heildarlaun karla hækkuðu aðeins um rúmt eitt prósent að meðaltali, samkvæmt könnuninni. Munurinn á heildarlaunum karla og kvenna var 169 þúsund krónur árið 2024, eða 21 prósent. Munurinn á heildarlaunum karla og kvenna meðal Hlífarfélaga minnkar því milli ára.
Félagsfólk var einnig spurt um grunnlaun/dagvinnulaun fyrir skatt í sínu aðalstarfi. Þar er launamunurinn minni, 55 þúsund krónur eða 8,7 prósent. Munurinn á grunnlaunum karla og kvenna mældist 6,3 prósent árið 2024 og eykst því milli ára.
Konur undir meira álagi en karlar
Í könnuninni var félagsfólk beðið um að leggja mat á álag sem það upplifir í vinnunni. Mun hærra hlutfall kvenna taldi vinnuálag sitt vera of mikið, eða 51 prósent á móti 35 prósentum karla. Meðal einstakra starfsstétta eru það ræstingar, umönnun og þjónustustörf sem skera sig úr hvað vinnuálag varðar. Stór hluti kvenna, eða 63 prósent, sögðu það koma frekar eða mjög oft fyrir að þær séu svo þreyttar eftir vinnudaginn að þær eigi erfitt með að gera nokkurn skapaðan hlut. Hlutfallið var 48 prósent meðal karla.
Könnunin var unnin af Gallup í október og nóvember 2025 og var fjöldi svarenda 1113.