Í dag var undirritaður kjarasamningur milli Verkalýðsfélagsins Hlífar og VSFK, við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu. Samningurinn er að flestu leyti í samræmi við samning Starfsgreinasambandsins við ríkissjóð og gildir 31. mars 2024, verði hann samþykktur í atkvæðagreiðslu.
Atkvæðagreiðsla hefst um samninginn þriðjudaginn 4. júlí kl. 12:00 og lýkur 12. júlí.
Helstu atriði um nýjan kjarasamning.
Greidd verða atkvæði hér á síðunni.