Í nóvember árið 2024, stefndi Verkalýðsfélagið Hlíf Hafnarfjarðarbæ, vegna vangoldinna persónuuppbóta starfsmanns sem hafði verið ráðinn í tímavinnu og starfaði samkvæmt ráðningarsamningi frá 20. september 2019, þar til í júlí 2024.

Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm þann 24. júní síðastliðinn (mál E-2988/2024). Í dómnum er Hafnarfjarðarkaupstað gert að greiða stefnanda persónuuppbætur aftur í tímann, auk málskostnaðar.

Hafnarfjarðarkaupstaður áfrýjaði dómnum til Landsréttar, en þar sem Landsréttur hefur ákveðið að taka málið ekki fyrir lítum við svo á, að um endanlegan dóm sé að ræða. Á grundvelli dómsins eiga þeir starfsmenn Hafnarfjarðarkaupstaðar sem starfa í tímavinnu og eftir kjarasamningi SGS og SÍS, en hafa ekki fengið greiddar persónuuppbætur rétt á því að fá greiddar persónuuppbætur á tímabilinu 1. desember 2020 til marsloka 2024.

Una ekki dómnum

Þrátt fyrir þetta, hefur Hafnarfjarðarkaupstaður ákveðið að fara ekki að dómnum varðandi annað starfsfólk í sömu stöðu. Félagið hefur fengið þau svör frá mannauðsdeildinni að þau telji dóminn rangan og ætli þess vegna ekki að una honum. Það er væri undarlegt samfélag ef þegnarnir færu einungis að þeim dómum sem þeir telja rétta, en leiddu þá hjá sér sem þeir eru ósammála.

Verkalýðsfélagið Hlíf á því ekki annarra kosta völ, en að leita uppi það fólk sem eins kann að vera ástatt um, þ.e. að hafa verið á tímavinnusamningi, en ekki fengið greiddar persónuuppbætur eins og dómurinn kveður á um að skuli vera. Við munum fara með mál hvers og eins á sama hátt og málið sem dómur er fallinn í. Við teljum engar líkur á því að dómurinn skipti um skoðun þegar önnur sambærileg mál eru tekin fyrir, þannig að líklegt verður að telja að Hafnarfjarðarkaupstaður þurfi að greiða talsverða fjármuni vegna þessa, ekki vegna þess sem við teljum bæinn skulda viðkomandi einstaklingum, heldur einkum vegna málskostnaðar, sem slagaði hátt í milljón í því máli sem lokið er.

Auglýst eftir fleirum

Verkalýðsfélagið Hlíf kallar eftir því að Hlífarfólk sem hefur unnið samkvæmt tímavinnusamningum á tímabilinu frá 1. desember 2020 til marsloka 2024 og ekki fengið greiddar persónuuppbætur að gefa sig fram við félagið, í síma 510 0800, eða með tölvupósti á hlif@hlif.is.