Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í morgun að endurgreiða starfsfólki, sem starfað hefur á tímavinnusamningum hjá bænum, ógreiddar persónuuppbætur. Í samþykkt bæjarráðs felst viðurkenning á því að dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli fyrrum starfsmanns hafi fordæmisgildi gagnvart öðru starfsfólki í sömu stöðu.
Verkalýðsfélagið Hlíf vakti á því athygli á dögunum að Hafnarfjarðarbær ætlaði ekki að una dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem komst að þeirri niðurstöðu að sveitarfélaginu bæri að greiða fyrrum starfsmanni bæjarins ógreiddar persónuuppbætur. Hlíf hafði þá fengið þau skilaboð frá stjórnendum hjá bænum að þeir teldu dóminn einfaldlega rangan og því stæði ekki til að una honum í máli annarra starfsmanna í sambærilegri stöðu. Hlíf lýsti sig reiðubúið til að hefja málaferli fyrir hönd hvers einasta starfsmanns sem teldi sig eiga þessar persónuuppbætur inni hjá sveitarfélaginu.
Afstaða Hafnarfjarðarbæjar breyttist með svohljóðandi samþykkt bæjarráðs í morgun: „Bæjarráð samþykkir að dómurinn hafi fordæmisgildi gagnvart öðrum starfsmönnum í sömu stöðu og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að ganga frá uppgjöri við viðkomandi starfsmenn.“
Eyþór Árnason, formaður Hlífar, er ánægður með sinnaskipti Hafnarfjarðarbæjar í málinu. „Við fögnum því að bæjarráð hafi samþykkt samhljóða að snúa við blaðinu. Þetta er fullnaðarsigur okkar í Verkalýðsfélaginu Hlíf. Nú geri ég ráð fyrir því að starfsfólk bæjarins vinni mál hvers og eins fljótt og vel. Eftir það er þetta mál farsællega úr sögunni.”