Félagsfólk Verkalýðsfélagsins Hlífar sem er af erlendum uppruna vinnur að meðaltali fleiri klukkustundir á viku en íslenskt félagsfólk. Þetta sýnir kjarakönnun sem unnin var fyrir félagið síðastliðið haust. Á sama tíma er félagsfólk af erlendum uppruna með talsvert lægri heildarlaun en íslenskt félagsfólk okkar.

Könnunin sýnir að félagsfólk af erlendum uppruna vinnur að meðaltali 44,3 stundir á viku á meðan íslenskt félagsfólk vinnur að meðaltali 41,5 stundir. Vikulegum vinnustundum íslensks félagsfólks fækkar úr 43,2 milli ára en þær standa í stað meðal félagsfólks af erlendum uppruna. Að meðaltali er félagsfólk af erlendum uppruna í 96 prósent starfshlutfall en íslenskt félagsfólk í 86 prósent starfshlutfalli.

Þessi munur endurspeglast ekki í launum. Meðal heildarlaun íslensks félagsfólks fyrir skatta eru 781 þúsund krónur á mánuði en meðallaun félagsfólks af erlendum uppruna eru aðeins 676 þúsund krónur. Félagsfólk af erlendum uppruna er því með aðeins 86,6 prósent af meðallaunum íslensks félagsfólks að meðaltali og munar 105 þúsund krónum.

Launamunurinn virðist endurspeglast í auknum fjárhagslegum áhyggjum félagsfólks af erlendum uppruna. 50 prósent þeirra hafa áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni en 42 prósent íslensks félagsfólks.

Kjarasamningsbrot og skert starfsöryggi

Hærra hlutfall félagsfólks af erlendum uppruna þekkir dæmi um kjarasamningsbrot á vinnustað á síðustu 12 mánuðum, eða 28 prósent miðað við aðeins 20 prósent íslensks félagsfólks.

Talsverður munur er á upplifun félagsfólks á starfsöryggi.  75 prósent íslensk félagsfólks telur sig búa við frekar mikið eða mjög mikið starfsöryggi en aðeins 57 prósent félagsfólks af erlendum uppruna.

Könnunin var unnin af Gallup í október og nóvember 2025 og var fjöldi svarenda 1113.