Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Hlífar verður haldinn fimmtudaginn 13. júní 2024, kl. 17:00.
Fundurinn verður haldinn í Hraunseli, félagsheimili eldri borgara, Flatahrauni 3.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til afgreiðslu.
- Lýst kjöri stjórnar og varastjórnar félagsins og félagslegra skoðunarmanna ásamt stjórnum og varastjórnum sjúkrasjóðs og orlofsheimilasjóðs.
- Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs.
- Kosning 2ja manna í kjörstjórn og tveggja til vara.
- Önnur mál.
Stjórnin