Gjald fyrir 8 klst. vistun í leikskólum Hafnarfjarðar hefur hækkað um 25 prósent frá árinu 2022. Þetta kemur fram í samantekt ASÍ og BSRB á þróun leikskólaþjónustu á kjörtímabilinu 2022-2026.
Í samantektinni kemur fram að opnunartími leikskóla hafi víða verið skertur og að í flestum sveitarfélögum hafi verið teknir upp svokallaðir skráningardagar, þegar borga þarf sérstaklega fyrir að fá að senda barn í leikskóla.
Þá kemur fram að leikskólarnir séu lokaðir fleiri daga en áður. Auk starfsdaga og sumarfrís sé nú víða lokað í kringum hátíðir eða í vetrarfríum grunnskóla. Samanlagt séu leikskólarnir lokaðir 36-40 daga á ári en til samanburðar á launafólk almennt 24-30 orlofsdaga á ári.
Í flestum sveitarfélögum hefur gjald fyrir 8 klst. vistunartíma hækkað mikið frá árinu 2022, en það hefur hækkað mest á Seltjarnarnesi, eða um 85 prósent. Í Kópavogi hefur það hækkað um 62 prósent og í Fjarðabyggð um 46 prósent. Í Hafnarfirði hefur gjaldið hækkað um 25 prósent en í Hveragerðisbæ hefur það lækkað um heil 39 prósent.