Ríflega 45,3 prósent félagsfólks Verkalýðsfélagsins Hlífar hefur frestað eða hætt við að fara til læknis á síðustu 12 mánuðum. Þetta sýna niðurstöður úr kjarakönnun sem framkvæmd var fyrir Hlíf í vetur. Langflestir hafa hætt við vegna þess hversu erfitt er að bóka tíma.

Verkalýðsfélagið Hlíf lætur á hverju ári framkvæma kjarakönnun meðal félagsfólks. Nýjasta könnunin, sem framkvæmd var í nóvember á síðasta ári, sýnir að tæplega helmingur félagsfólks hefur þurft að fresta eða hætta við að fara til læknis á síðustu 12 mánuðum af ýmsum ástæðum. Algengasta ástæðan fyrir því að félagsfólk hefur þurft að hætta við eða fresta því að fara til læknis er hversu löng bið er eftir tíma. Tveir þriðju þeirra sem frestuðu eða hættu við læknisheimsókn sögðu það hafa verið vegna þess að hversu erfitt er að fá tíma. Fleiri konur en karlar hafa þurft að fresta eða hætta við læknisheimsókn, eða 48 prósent miðað við 42 prósent karla.

Einn af hverjum sjö hefur ekki efni á að fara til læknis

13,7 prósent aðspurðra, eða einn af hverjum sjö, þurfti að fresta eða hætta við læknisheimsókn vegna kostnaðar. Tæplega 10 prósent segjast hafa verið of upptekin til að fara til læknis og 8,4 prósent segjast hafa frestað eða hætt við læknisheimsókn vegna þess að það sé tilgangslaust að fara til læknis, það komi einfaldlega ekkert út úr því.

Löng bið eftir heimilislækni

Ný úttekt Viðskiptaráðs sýnir að bið eftir tíma hjá heimilislækni er 32 dagar hjá heilsugæslunni Sólvangi í Hafnarfirði. Hjá heilsugæslunni Firði er einfaldlega ekki hægt að bóka tíma hjá heimilislækni. Alþýðusamband Íslands hefur bent á að lausnin á vanda heilsugæslunnar sé ekki aukinn einkarekstur heldur forgangsröðun fjármagns, bætt starfsskilyrði og fjölgun heimilislækna.

Könnunin var unnin af Gallup í október og nóvember 2025 og var fjöldi svarenda 1113.