Hlutfall félagsfólks Verkalýðsfélagsins Hlífar sem er á leigumarkaði er orðið 52,3 prósent samkvæmt kjarakönnun sem framkvæmd er fyrir félagið ár hvert. Hlutfallið hefur hækkað jafnt og þétt frá árinu 2019 þegar það var 24,7 prósent. Hlutfall þeirra sem búa í eigin húsnæði er 30,2 prósent og hefur aldrei verið lægra.
Mikill munur er á stöðu félagsfólks á húsnæðismarkaði eftir uppruna. Fjórðungur íslensks félagsfólks Hlífar er á leigumarkaði en tæp 80 prósent félagsfólks af erlendum uppruna. Alls búa 45 prósent íslensks félagsfólks í eigin húsnæði, en aðeins 16,5 prósent félagsfólks af erlendum uppruna.
Þegar einstakar starfsstéttir eru skoðaðar kemur í ljós að 87 prósent félagsfólks Hlífar sem starfar við ræstingar eru á leigumarkaði.
Leigjendur í verri fjárhagsstöðu en eigendur
Félagsfólk var spurt um áhyggjur þess af fjárhagslegri stöðu sinni. Ríflega helmingur þeirra sem eru á leigumarkaði, eða 56 prósent, segjast hafa frekar miklar eða mjög miklar áhyggjur af fjárhagslegri stöðu sinni. Meðal þeirra sem búa í eigin húsnæði er hlutfallið 38 prósent.
Af leigjendum segjast 22 prósent hafa átt í frekar miklum eða mjög miklum erfiðleikum með að standa skil á húsnæðiskostnaði á síðustu 12 mánuðum. Meðal þeirra sem búa í eigin húsnæði er hlutfallið 17 prósent.
Athygli vekur að hlutfall þeirra sem segjast hafa átt erfitt með að standa skil á afborgunum af lánum á síðustu 12 mánuðum er talsvert hærra meðal leigjenda en þeirra sem búa í eigin húsnæði. Meðal leigjenda áttu 29 prósent erfitt með að greiða af lánum samanborið við 18 prósent þeirra sem búa í eigin húsnæði.
Könnunin var unnin af Gallup í október og nóvember 2025 og var fjöldi svarenda 1113.