Stjórnvöld hafa á undanförnum árum gripið til ráðstafana sem fært hafa beinan húsnæðisstuðning til hinna tekjuhæstu í samfélaginu. Á sama tíma hefur markvisst verið dregið úr stuðningi í gegnum vaxtabótakerfið sem einkum nýtist ungum og tekjulágum.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýju mánaðaryfirliti Sviðs stefnumótunar og greininga hjá Alþýðusambandi Íslands (ASÍ).