Klukk – nýtt tímaskráningar app
![](http://www.asi.is/media/276064/Klukk_LOGO_texti.jpg?w=450&h=250)
Hvað er Klukk?
Klukk er nýtt ókeypis tímaskráningar app fyrir Android/iOS sem ætlað er launafólki. Notandi skráir vinnutímana sína með Klukk og hefur þannig yfirsýn yfir unnar vinnustundir. Í klukk er hægt að virkja staðsetningarbúnað sem minnir notandann á að klukka sig inn og út. Einnig er hægt að senda sér tímaskráningarskýrslu úr Klukk á netfang viðkomandi. Frekari upplýsingar um Klukk má finna hér.
Hvers vegna Klukk?
Hugmyndin varð til eftir ábendingar frá stéttarfélögunum þar sem ítrekað koma inn á borð deilur um vinnutíma. Auk þess hafa nemendur rætt sama vandamál þegar fulltrúar ASÍ hafa farið í fræðsluheimsóknir í framhaldsskóla. Verkalýðshreyfingin er því að svara óskum unga fólksins með Klukk appinu.
Klukk er sótt í App store og Play store. Hlekkirnir eru hér ef þú átt eftir að sækja Klukk.