1. maí er á föstudaginn og hvetur Verkalýðsfélagið Hlíf félagsmenn sína og alla þá sem tök hafa á að sýna samstöðu og mæta í kröfugönguna sem stéttafélögin í Hafnarfirði standa fyrir, því oft er þörf en nú er nauðsin.
Dagskrá 1. Maí hátíðarhaldanna í Hafnarfirði 2015
Kl. 13:30 Safnast saman fyrir framan Ráðhús Hafnarfjarðar Strandgötu 6
kl. 14.00 Kröfuganga leggur af stað
Gengið verður upp Reykjavíkurveg, Hverfisgötu, Smyrlahraun, Arnarhraun, Sléttahraun og að Hraunseli við Flatahraun.
Kl. 14:30 Hátíðarfundur hefst í Hraunseli, Flatahrauni 3.
Athugið húsið opnar ekki fyrr en kröfugangan kemur í hús.
Fundastjóri: Jóhanna M. Fleckenstein
Ávarp dagsins: Karl Rúnar Þórsson, formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
Ræða: Kolbeinn Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Skemmtiatriði: Voces masculorum, sönghópurinn Voces masculorum kemur og tekur nokkur lög fyrir gesti.
1. maí ávarp verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði er að finna hér