Nýjar tillögur ASÍ í skattamálum gætu bætt stöðu um 95% launafólks, að mati Hagdeildar. Fjármálaráðherra hefur lýst vantrú á tillögunum. Tillögur sambandsins eru afrakstur vinnu sem m.a. byggir á úttekt Hagdeildarinnar frá hausti 2017 og fjallað var ítarlega um í jólablaði Hjálms það ár. Enn er beðið eftir útspili ríkisstjórnarinnar í skattamálum, en verkalýðshreyfingin hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að styrkja á ný tekjujöfnunarhlutverk skattkerfisins, en stjórnvöld hafa markvisst grafið undan því á undanförnum árum og áratugum og beitt kerfinu í þágu þeirra tekjuhærri.
Effirfarandi er af vef ASÍ
Alþýðusambandið hefur á undanförnum árum ítrekað gagnrýnt þróun skatt- og tilfærslukerfanna. Ástæðan er einföld, þær breytingar sem gerðar hafa verið hafa ekki miðað að því að bæta stöðu hinna tekjulægri. Í skýrslu Hagdeildar sem gefin var út haustið 2017 var skattbyrði launafólks rakin frá árinu 1998. Niðurstaða skýrslunnar var aukin skattbyrði launafólks á síðustu áratugum og hefur þróunin komið verst niður á tekjulægri hópum[1] sökum þróunar skattkerfis og veikingar tilfærslukerfanna.
Skatta og tilfærslukerfi gegna lykilhlutverki í að draga úr ójöfnuði en líkt og OECD hefur bent á,„Tax and transfer systems play a key role in lowering overall income inequality. Three quarters of the average reduction in inequality they achieve across the OECD is due to transfers“. Veiking tilfærslukerfanna eykur því að óbreyttu auka ójöfnuð tekna.
Tillögur ASÍ í skattamálum miða að því að leiðrétta þessa þróun með einföldum aðgerðum.
Fjármálaráðherra hefur haldið því fram í gagnrýni sinni á tillögur ASÍ um breytingar á skattkerfinu að þær muni leiða til þess að skattbyrði hækki á meðaltekjur og jaðarskattar aukist. Þessi ummæli ráðherrans benda til þess að hann hafi ekki kynnt sér tillögurnar nægilega vel og því full ástæða til að leiðrétta þennan misskilning. Það er rangt hjá fjármálaráðherra að tillögur ASÍ leiði til hækkunar á skattbyrði meðaltekjufólks. Þvert á móti gera tillögur ASÍ ráð fyrir að skattbyrði 95% vinnandi fólks lækki eða haldist óbreytt en tekjuhæstu 5% munu hins vegar greiða hærri skatta en nú er enda skattbyrði þeirra tekjuhæstu sú lægsta á Íslandi af Norðurlöndunum.
Þannig munu tillögurnar auka mest ráðstöfunartekjur þeirra sem hafa laun undir 500.000 krónum á mánuði, skattbyrði í efri millitekjum verður óbreytt en eykst hjá þeim allra tekjuhæstu. Þetta köllum við að nýta tekjuskattskerfið sem raunverulegt jöfnunartæki. Áhyggjur fjármálaráðherrans af auknum jaðarsköttum eru einnig óþarfar því tillögurnar gera beinlínis ráð fyrir því að jaðarskattar hinna tekjulægri lækki.
[1] Sjá nánar skýrslu Hagdeildar ASÍ, “Skattbyrði launafólks 1998-2016”, https://www.asi.is/media/313630/skattbyrdi-launafolks-1998-2016.pdf
Verkalýðsfélagið Hlíf býður félagsmönnum sínum upp á lögfræðiþjónustu þeim að kostnaðarlausu.
Sjóðurinn er ætlað að styrkja þá félagsmenn sem sækja sér menntun á almennum fræðslumarkaði.
Hlíf 9 orlofshus and 3 orlofsíbúð
.